Langalína 2 er nýtt og glæsilegt 6 hæða fjölbýlishús í fjölskylduvænu og fallegu umhverfi við sjávarsíðuna í Sjálandi Garðabæjar. Íbúðirnar eru stórglæsilegar og nýtískulegar allar með tvennum svölum. Bílageymsla er undir húsinu og sérstæði fylgir íbúðunum. Frábært sameiginlegt íbúasvæði er suðvestan við húsið. Góðar gönguleiðir eru frá húsinu og hverfið í kring er algjör barnaparadís með fjölmörgum leiksvæðum. Við strandlengjuna er ylströnd og göngustígur sem tengir hverfið við miðbæ Garðabæjar og íþróttasvæði Stjörnunnar. Sjálandsskólinn er næsta hús og og leikskólinn Sjáland er mjög nálægt. Greiðfært er út á Reykjanesbraut. Stutt er í alla verslun og þjónustu.