Um Meira

 

Hvers vegna Meira?

Meira Leiguhúsnæði er nýjung á íslenskum leigumarkaði og svar við því ástandi sem ríkt hefur á húsnæðismarkaði síðastliðin ár.  Með breyttum aðstæðum á Íslandi er viðhorf á leigumarkaði hratt að breytast.  Það er hinsvegar alþekkt að ekki hafi verið hugað nógu vel að hagsmunum leigjenda og þjónusta af skornum skammti – þessu vill Meira Leiguhúsnæði breyta.

 

Hinn "gamli" íslenski, vanþróaði leigumarkaður er að þróast í rétta og betri átt. Það þykir í ríkari mæli eðlilegt og enginn smánarblettur að vera á leigumarkaði. Ef við lítum út fyrir landsteinana, ekki síst til annarra Norðurlanda, er málum á leigumarkaði öðruvísi háttað. Þar kjósa margir að leigja allt sitt líf í stað þess að kaupa fasteign.

 

Oft hefur því verið haldið fram að það sé skárra að leigja af sjálfum sér en kasta peningum á glæ með því að leigja. Dæmin sanna að það er ekki alls kostar rétt. Það er mat Meira að nauðsynlegt sé að hér rísi alvöru langtíma leigumarkaður með öruggri búsetu og meiri réttindum leigjenda. Þetta á ekki síst við um ríkjandi ástand á fasteignalánamarkaði með þeim erfiðleikum og verðtryggingu sem honum fylgir. Fólk á að geta valið sér leiguhúsnæði og flutt inn án þess að hafa áhyggjur af því að missa húsnæðið á einhverjum tímapunkti.

 

Meira vill leggja sitt af mörkum til þess að fólk eigi þess kost að leigja með öruggum hætti og til langtíma í stað þess að kaupa. Að leigja á ekki að vera kvöð heldur góður kostur. Til þess að koma því til leiðar hefur Þórsgarður ehf. í samstarfi við Meira leiguhúsnæði, keypt 25 glænýjar og glæsilegar íbúðir í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði sem munu fara í langtímaleigu þar sem búsetuöryggi er tryggt. Meira Leiguhúsnæði er hugsað fyrir langtímaleigjendur sem vilja vera á leigumarkaði með alla kostina sem því fylgir en lausir við ókostina, ekki síst þá sem fylgja því að eiga fasteign á Íslandi í dag.

 

Hvað býður Meira?

Meira býður tvenns konar leigusamninga. Annars vegar tímabundinn samning til 18 mánaða sem að þeim tíma liðnum breytist í ótímabundinn langtímaleigusamning, sé ekkert aðhafst. Hins vegar tímabundinn langtímaleigusamning, allt frá 2 árum og lengur, allt eftir óskum fólks. Öllum ótímabundnum samningum fylgir 2 ára uppsagnarfrestur af hálfu leigusala en leigutaki heldur sínum lögbundna 6 mánaða uppsagnarfresti.  Meira veitir leigjendum sínum rétt til þess að breyta og eiga við hið leigða eins og um eigið húsnæði sé að ræða, svo framarlega sem breytingarnar séu til bóta og eyðileggi ekkert. Það er vilji Meira að leigjendum líði eins og þeir séu í eigin húsnæði. Meira sér um allt viðhald á hinu leigða húsnæði samkvæmt húsaleigulögum. Meira kemur til með að bjóða aukna þjónustu eins og þrif og annað tengt góðu húshaldi. 

 

Hvað þarft þú til að leigja hjá Meira?

Meira er að leita að traustum leigjendum, helst fjölskyldufólki til langst tíma. Þú þarft að vera traustur greiðandi og veita Meira leyfi til að afla gagna um þig hjá Lánstrausti. Meira fer fram á einn mánuð fyrirframgreiddann og þriggja mánaða bankaábyrgð. Allt gæludýrahald er háð samþykki annarra íbúa hússins. Leigan er tengd vísitölu neysluverðs.